Mónakó kaupir Zakaria (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: EPA


Mynd: Getty Images
Denis Zakaria er genginn til liðs við AS Mónakó sem leikur í frönsku deildinni og endaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð.
Liðið leikur því ekki í Evrópu vetur en er búið að krækja í þrjá leikmenn í sumar eftir komu Zakaria.
Mónakó borgar 20 milljónir evra fyrir Zakaria og talið er að Juventus haldi háu hlutfalli af endursölurétti, sem gæti verið í kringum 40%.
Zakaria er 26 ára gamall og lék 15 leiki fyrir Juventus á fyrri hluta síðustu leiktíðar, áður en hann var lánaður til Chelsea fyrir seinni hlutann. Þar kom hann við sögu í 11 leikjum.
Mónakó er þegar búið að krækja í Mohamed Salisu frá Southampton og Philipp Köhn frá RB Salzburg í sumar.
Denis Zakaria is here ???????????? pic.twitter.com/EDHMPYfD5a
— AS Monaco EN (@AS_Monaco_EN) August 14, 2023


Mynd: EPA




