Fotbolti.net
14.08.23 - 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Oxlade-Chamberlain í Besiktas (Staðfest)

Oxlade-Chamberlain er mættur til Tyrklands.

Oxlade-Chamberlain er mættur til Tyrklands.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Besiktas hefur staðfest komu Alex Oxlade-Chamberlain til félagsins en hann kemur frá Liverpool á frjálsri sölu.
Uxinn, eins og hann er kallaður, yfirgaf Liverpool í sumar en hann verður þrítugur á morgun.

Hann var hjá Liverpool í sex tímabil og skoraði átján mörk í 146 leikjum í öllum keppnum. Hann glímdi við mikil meiðslavandræði á meðan hann var hjá félaginu.

Miðjumaðurinn lék á sínum tíma 35 leiki fyrir enska landsliðið og skoraði í þeim sjö mörk. Hann er uppalinn hjá Southampton og fór svo til Arsenal þar sem hann var í sex ár áður en hann samdi svo við Liverpool.

Núna er hann búinn að semja við Besiktas sem hefur átt flottan félagaskiptaglugga. Besiktas er þegar búið að krækja í Daniel Amartey á frjálsri sölu frá Leicester og Ante Rebic frá AC Milan, auk þess að hafa fest kaup á Arthur Masuaku frá West Ham og Jean Onana frá Lens.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.