Fotbolti.net
14.08.23 - 09:21
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Kepa Arrizabalaga til Real Madrid (Staðfest)

Kepa Arrizabalaga til Real Madrid (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid varð fyrir áfalli í síðustu viku þegar markvörðurinn Thibaut Courtois sleit krossband á æfingu.

Það tók þó ekki langan tíma fyrir spænska stórveldið að tryggja sér markvörð til að fylla hans skarð.
Kepa Arrizabalaga er kominn til félagsins á lánssamningi frá Chelsea út tímabilið. Hann mun verða aðalmarkvörður Madrídarliðsins á meðan Courtois er fjarverandi.

Robert Sánchez er orðinn aðalmarkvörður Chelsea en Spánverjinn kom til félagsins frá Brighton í sumar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.