Fotbolti.net
12.08.23 - 15:16
Ívan Guðjón Baldursson

Son tekur við fyrirliðabandinu af Hugo Lloris (Staðfest)

Son tekur við fyrirliðabandinu af Hugo Lloris (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Suður-kóreski kantmaðurinn Son Heung-min er nýr fyrirliði Tottenham Hotspur. Hann tekur við fyrirliðabandinu af hinum 36 ára gamla Hugo Lloris sem hefur fengið leyfi til að yfirgefa Tottenham í sumar, þó hann eigi eitt ár eftir af samningi.

Son er 31 árs gamall og hefur verið hjá Tottenham síðustu átta ár. Hann á 145 mörk í 372 leikjum fyrir félagið og er elskaður og dáður af stuðningsmönnum.

Enski landsliðsfyrirliðinn Harry Kane hefði eflaust fengið fyrirliðabandið en hann kaus að skipta yfir til FC Bayern í Þýskalandi frekar en að halda áfram hjá Tottenham.

Lloris hefur verið fyrirliði Tottenham síðustu átta ár auk þess að vera leikjahæsti fyrirliði í sögu franska landsliðsins.

Lloris er einn af bestu markvörðum sinnar kynslóðar en hann er kominn til ára sinna. Hann spilaði þó 31 leik með Tottenham á síðustu leiktíð, en er spenntur fyrir að prófa nýja áskorun.

Tottenham er búið að festa kaup á ítalska markverðinum Guglielmo Vicario sem gerði frábæra hluti með Empoli á síðustu leiktíð í Serie A.

Son tekur við fyrirliðabandinu af Hugo Lloris (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.