Traore til liðs við Fulham (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Adama Traore er genginn til liðs við Fulham á frjálsri sölu eftir að samningurinn hans við Wolves rann út í sumar.
Hann gerir tveggja ára samning við félagið.
Traore er 27 ára gamall Spánverji og er uppalinn hjá Barcelona en hann hefur leikið með Middlesbrough, Aston Villa og Wolves á Englandi.
Hann er annar leikmaðurinn sem Fulham fær til sín frá Wolves en Raul Jimenez gekk til liðs við félagið í sumar.




