Mancini hættur með ítalska landsliðið (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roberto Mancini er hættur þjálfun ítalska landsliðsins en þetta kemur fram í yfirlýsingu ítalska fótboltasambandsins í dag.
Mancini tók við landsliðinu árið 2018 eftir að Gian Piero Ventura mistókst að koma liðinu á HM í Rússlandi.
Ítalska landsliðið náði mögnuðum árangri undir stjórn Mancini en það vann Evrópumótið fyrir tveimur árum eftir magnaðan úrslitaleik gegn Englendingum á Wembley.
Hann náði hins vegar ekki að fylgja því eftir og missti Ítalía af sæti á HM í Katar eftir að hafa tapað fyrir Norður-Makedóníu í undanúrslitum umspilsins.
Ítalska fótboltasambandið greindi frá óvæntum fréttum í dag þar sem tilkynnt var að Mancini væri hættur þjálfun landsliðsins og að nýr þjálfari verði kynntur á næstu dögum.

BREAKING: Roberto Mancini has left Italian national team with immediate effect. ????????????????
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) August 13, 2023
Mancini and Italian Federation agreed to part ways, 10 months before Euro 2024. pic.twitter.com/fz2PgFeaZr