Fotbolti.net
13.08.23 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Diego Costa til Botafogo (Staðfest)

Diego Costa til Botafogo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Diego Costa er genginn til liðs við Botafogo í Brasilíu. Costa er fæddur í Brasilíu en lék með spænska landsliðinu á sínum ferli.

Hann átti frábæran feril með Atletico Madrid og Chelsea en lék með Wolves á síðasta tímabili þar sem honum tókst að skora aðeins eitt mark.

Þessi 34 ára gamli framherji varð tvisvar enskur meistari með Chelsea og tvisvar spænskur meistari með Atletico Madrid. Þá var hann í liði Atletico sem vann Evrópudeildina tímabilið 2017/18.

Hann yfirgaf Atletico Madrid árið 2021 og fór til Atletico Minero í Brasilíu áður en hann snéri aftur til Evrópu og spilaði með Wolves á síðustu leiktíð.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.