Fotbolti.net
12.08.23 - 15:40
Ívan Guðjón Baldursson

Marquinhos til Nantes á láni (Staðfest)

Marquinhos hefur komið við sögu í sex leikjum með aðalliði Arsenal. Hann skoraði og lagði upp í sínum fyrsta Evrópudeildarleik, 2-1 sigri gegn FC Zürich.

Marquinhos hefur komið við sögu í sex leikjum með aðalliði Arsenal. Hann skoraði og lagði upp í sínum fyrsta Evrópudeildarleik, 2-1 sigri gegn FC Zürich.

Canon

Mynd: EPA

Franska félagið Nantes er búið að tryggja sér brasilíska kantmanninn Marquinhos á lánssamningi frá Arsenal sem gildir út tímabilið.

Marquinhos er 20 ára gamall og kom við sögu í ellefu leikjum á láni hjá Norwich á seinni hluta síðustu leiktíðar.

Núna heldur hann í franska boltann til að reyna fyrir sér og vonast til að eiga svipað tímabil og Folarin Balogun þegar hann fór til Reims.

Nantes rétt slapp við fall á síðustu leiktíð þar sem liðið fékk 36 stig úr 38 umferðum, einu stigi meira en Auxerre sem féll.

Marquinhos fær tíuna hjá Nantes en hann á fjögur ár eftir af samningi sínum við Arsenal.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.