Sigríður Theódóra aftur í Val (Staðfest)

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir.

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Sigríður Theódóra Guðmundsdóttir er komin aftur í Val eftir að hafa verið á láni á Selfossi fyrri hluta tímabilsins.
Selfoss hefur núna misst þrjá leikmenn sem voru á láni hjá félaginu því Emelía Óskarsdóttir og Jimena Lopez eru líka farnar.
Sigríður er fædd árið 2005 og getur leyst margar stöður framarlega á vellinum.
Hún lék í sumar tólf leiki með Selfoss í Bestu deildinni, en liðið er sem stendur á botni deildarinnar. Í fyrra lék hún átta leiki með Val í deild og bikar.
Sigríður fór í sumar með U19 landsliðinu á Evrópumótið og kom þar inn á af bekknum í tveimur leikjum.
Valur er að berjast við Breiðablik á toppi Bestu deildarinnar en bæði lið eru sem stendur með 33 stig. Sigríður Theódóra getur spilað í næsta leik Vals gegn Þór/KA á morgun.