Fotbolti.net
14.08.23 - 08:35
Elvar Geir Magnússon

Ward-Prowse til West Ham (Staðfest)

Ward-Prowse hefur skrifað undir hjá West Ham.

Ward-Prowse hefur skrifað undir hjá West Ham.

Canon

Mynd: West Ham

West Ham hefur keypt miðjumanninn James Ward-Prowse frá Southampton en kaupverðið er um 30 milljónir punda. Enski landsliðsmaðurinn er 28 ára og skrifar undir fjögurra ára samning.
Ward-Prowse fór til Southampton þegar hann var átta ára gamall og lék 410 leiki fyrir aðallið félagsins. Hann var fyrirliði liðsins en það féll niður í Championship-deildina á síðasta tímabili.

„Ég er hæstánægður með að vera kominn til West Ham," segir Ward-Prowse, sem fer treyju númer 7.

„Eftir að hafa fylgst með utan frá þá hefur félagið verið á uppleið síðustu ár og vann Sambandsdeildina á síðasta tímabili. Það er meðbyr með félaginu."

David Moyes, stjóri West Ham, er ánægður með að hafa krækt í miðjumanninn.

„Hann hefur leikið afskaplega vel í ensku úrvalsdeildinni yfir síðasta áratug og skilað góðri tölfræði tímabil eftir tímabil. Leiðtogahæfileikar hans eru augljósir og hann verður öflug rödd fyrir liðið á miðsvæðinu," segir Moyes.

Ward-Prowse er þekktur fyrir spyrnutækni sína en bara David Beckham hefur skorað fleiri mörk beint úr aukaspyrnum í ensku úrvalsdeildinni.

West Ham seldi Declan Rice til Arsenal fyrir 105 milljónir punda og hefur stærstan hluta sumarsins verið að vinna í því að reyna að landa Ward-Prowse. Í síðustu viku keypti West Ham mexíkóska miðjumanninn Edson Alvarez frá Ajax á 35 milljónir punda.

Þá hefur West Ham náð samkomulagi við Manchester United um varnarmanninn Harry Maguire og hefur áhuga á að fá Cole Palmer frá Manchester City.

Ward-Prowse tekur hið fræga golf-fagn.

Ward-Prowse tekur hið fræga golf-fagn.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.