Afturelding fær markahæsta leikmann Ægis (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Afturelding hefur fengið til sín sóknarmanninn Ivo Braz frá botnliði Ægis. Ivo hefur skorað sjö mörk í sextán leikjum fyrir Ægi og var langmarkahæsti leikmaður liðsins áður en hann var fenginn í Mosfellsbænum.
Ivo er Portúgali sem lék bæði á köntunum sem og fyrir aftan fremsta mann í leik Ægis gegn Þór á dögunum en þar skoraði Ivo eitt mark, úr vítaspyrnu.
Ivo er Portúgali sem lék bæði á köntunum sem og fyrir aftan fremsta mann í leik Ægis gegn Þór á dögunum en þar skoraði Ivo eitt mark, úr vítaspyrnu.
Hann er 28 ára gamall og er hann mjög léttleikandi. Samningur hans við Ægi var út tímabilið en núna er hann kominn í Mosfellsbæinn.
Ivo kom til Íslands frá litháeska félaginu Dziugas en þar á undan hafði hann leikið allan sinn feril í Portúgal.
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Afturelding einnig að fá Rúrik Gunnarsson á láni frá KR.

Viðtalið pic.twitter.com/8Q0aOJnCGy
— Afturelding (@umfafturelding) August 14, 2023