Ousmane Dembele til PSG (Staðfest)

Mynd: PSG

Mynd: PSG
PSG tilkynnti rétt í þessu frá kaupum á Ousmane Dembele sem kemur til franska félagsins frá Barcelona.
Franski kantmaðurinn hefur verið hjá Barcelona síðan 2017 en þá var hann keyptur á risaupphæð frá þýska félaginu Dortmund. Hann kom í kjölfar sölu Barcelona á Neymar og varð Dembele næst dýrasti leikmaður í sögunni á eftir Neymar.
Dembele er 26 ára franskur landsliðsmaður sem glýmdi talsvert við meiðsli hjá Barca en lék þó í heildina 185 leiki og skoraði 40 mörk fyrir félagið á sex tímabilum.

Dembele er uppalinn hjá Rennes en fór til Dortmund fyrir tímabilið 2016-17. Hann átti gott tímabil í Þýskalandi og skoraði á tvítugur tíu mörk fyrir þýska félagið.
Hann skrifar undir samning við PSG sem gildir fram á sumarið 2028 og fær treyju númer 23. Dembele varð heimsmeistari með franska landsliðinu 2018 og á alls 37 landsleiki að baki.
Barcelona greinir frá því að PSG greiði 50,4 milljónir evra fyrir leikmanninn og segir Fabrizio Romano að hluti kaupverðisins fari í vasa Dembele. Áður hefur verið greint frá því að allt að helmingur kaupverðisins fari til Dembele.

Bienvenue dans ta nouvelle maison, Ousmane ! ??????#WelcomeDembélé pic.twitter.com/AgkrvX0feK
— Paris Saint-Germain (@PSG_inside) August 12, 2023
???? #WelcomeDembélé ???? pic.twitter.com/oStfNucixm