Man Utd fær ungan bakvörð frá Watford (Staðfest)

Bakvörðurinn Harry Amass er genginn til liðs við Manchester United en hann kemur til félagsins frá Watford. Hann kemur til með að spila með unglingaliðum United til að byrja með.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24446 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Bakvörðurinn Harry Amass er genginn til liðs við Manchester United en hann kemur til félagsins frá Watford. Hann kemur til með að spila með unglingaliðum United til að byrja með.

Breiðablik tilkynnti í kvöld að Kristófer Ingi Kristinsson sé genginn í raðir félagsins frá VVV-Venlo í Hollandi. Hann semur við Breiðablik út þetta ár.

Yunus Musah er genginn til liðs við AC Milan frá Valencia. Hann gerir fimm ára samning við félagið.

Newcastle United hefur lánað Harrison Ashby til Swansea í Championship-deildinni út tímabilið. Championship-deildin hefst í kvöld en Swansea á leik gegn Birmingham á morgun.
Marley Blair, sem lék með Keflavík fyrri hluta tímabilsins, er genginn í raðir enska félagsins Farsley Celtic og mun leika með liðinu í ensku utandeildinni í vetur. Farsley Celtic er í sjöttu efstu deild á Englandi, National League North.
Lillý Rut Hlynsdóttir er gengin í raðir FH á láni frá Val út tímabilið. Miðvörðurinn var í nokkuð stóru hlutverki hjá Val fyrri hluta tímabilsins, oftast í byrjunarliðinu, en hefur færst aftar í goggunarröðina eftir komu Önnu Bjarkar Kristjánsdóttur til félagsins. Lillý hefur ekki spilað í síðustu tveimur leikjum Vals, var á bekknum gegn ÍBV en var ekki í hópnum gegn Þrótti í gærkvöldi.
Franski miðvörðurinn Axel Disasi er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Disasi er 25 ára og er keyptur á 39 milljónir punda frá Mónakó. Hann lék alla 38 deildarleiki Mónakó á síðasta tímabili. Hann veitir enska félaginu aukna breidd í miðvarðastöðunum. Wesley Fofana er á meiðslalistanum hjá Chelsea og verður frá í einhvern tíma og því var ákveðið að ráðast í það að fá Disasi inn.
Diljá Mjöll Aronsdóttir og Harpa Karen Antonsdóttir hafa báðar fengið félagaskipti yfir í Aftureldingu og verða því löglegar með liðinu í næsta leik í Lengjudeild kvenna.
Hollenska félagið Ajax gekk í dag frá kaupum á portúgalska vængmanninum Carlos Borges en hann kemur frá Englands- og Evrópumeisturum Manchester City.
Luton Town er komið með markvörð fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni en belgíski leikmaðurinn Thomas Kaminski er kominn frá Blackburn Rovers.
Í kjölfar fréttar hér á Fótbolti.net þar sem því var velt upp hvort Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, hefði ákveðið að hætta sem þjálfari liðsins í lok tímabilsins, hefur félagið, ásamt Sigga Ragga sjálfum, sent út sameiginlega yfirlýsingu. Þar segir að samstarfi Keflavíkur og Sigga Ragga muni ljúka í október næstkomandi að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Tekið er fram að báðir aðilar hafi komist að samkomulagi um að best sé að leiðir skilji og að ákvörðunin sé tekin með vinsemd og virðingu beggja aðila fyrir hvorum öðrum. Siggi Raggi hefur verið þjálfari liðsins í fjögur ár og undir hans stjórn endaði liðið í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðasta ári sem var besti árangur liðsins í tólf ár. Keflavík er í botnsæti Bestu deildarinnar þegar tíu umferðir eru eftir og eru sex stig upp í öruggt sæti. Liðið hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð sem fór fram á öðrum degi páska.
Sheffield United hefur keypt varnarmanninn Auston Trusty frá Arsenal, þessi 24 ára bandaríski landsliðsmaður var hjá Birmingham City á lánssamningi á síðasta tímabili þar sem hann var valinn leikmaður ársins.
FH hefur tilkynnt um komu þýska varnarmannsins Rachel Avant til félagsins. Hún kemur til FH eftir að hafa síðast verið á mála hjá Nantes í Frakklandi. Hún hefur spilað í Frakklandi frá árinu 2020 en þar áður lék hún með Soyaux.
Sunderland tilkynnti í gær um komu Nathan Bishop frá Manchester United. Kaupverðið er óuppgefið. Nathan Bishop er 23 ára enskur markvörður sem gekk í raðir Man Utd árið 2020. Hann lék ekki keppnisleik með United en var fjórum sinnum á bekknum á síðasta tímabili. Sunderland er í ensku Championship deildinni.
Manuel Lanzini og Lucas Moura, fyrrum leikmenn í ensku úrvalsdeildini, hafa samið við sín fyrrum félög í Suður-Ameríku. Argentínski miðjumaðurinn Lanzini og brasilíski vængmaðurinn Moura yfirgáfu West Ham og Tottenham í sumar. Báðir eru 30 ára gamlir.
Þýski sóknarmaðurinn Deniz Undav mun spila með Stuttgart á láni frá Brighton út tímabilið en þetta staðfest enska félagið í gær.
Jóhann Þór Arnarsson er genginn til liðs við Þrótt Vogum frá Keflavík.
KA hefur landað unglingalandsliðsmanninum Árna Veigari Árnasyni frá Hetti.
Þorri Stefán Þorbjörnsson er genginn í raðir danska félagsins Lyngby. Á þessu vakti umboðsmaður hans, Halldór Ragnar Emilsson, athygli á Instagram reikningi sínum í dag. Lyngby kaupir Þorra frá FH þar sem hann hefur verið í eitt og hálft ár en hann kom til FH frá Fram. Hann lék sinn fyrsta og keppnisleik með FH gegn einmitt Fram í júní.
Varnarmaðurinn Mohammed Salisu er genginn til liðs við Monaco frá Southampton. Þessi 24 ára gamli Ganverji gerir fimm ára samning við félagið.