Lillý Rut í FH (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Lillý Rut Hlynsdóttir er gengin í raðir FH á láni frá Val út tímabilið. Miðvörðurinn var í nokkuð stóru hlutverki hjá Val fyrri hluta tímabilsins, oftast í byrjunarliðinu, en hefur færst aftar í goggunarröðina eftir komu Önnu Bjarkar Kristjánsdóttur til félagsins.
Lillý hefur ekki spilað í síðustu tveimur leikjum Vals, var á bekknum gegn ÍBV en var ekki í hópnum gegn Þrótti í gærkvöldi.

Lillý er 26 ára miðvörður sem lék á sínum tíma 34 leiki fyrir yngri landsliðin.
Á sínum ferli hefur hún leikið með Þór/KA og Val. Hún fór frá Þór/KA eftir tímabilið 2018.
Hjá FH hittir Lillý fyrir Örnu Eiríksdóttur sem var lánuð frá Val í FH í upphafi tímabils. Næsti leikur FH er gegn Keflavík næsta fimmtudag.