Milan kaupir annan bandarískan landsliðsmann (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Yunus Musah er genginn til liðs við AC Milan frá Valencia. Hann gerir fimm ára samning við félagið.
Þessi tvítugi bandaríski landsliðsmaður hélt til Englands árið 2012 og samdi við Arsenal. Þaðan fór hann til Valencia árið 2019. Þar lék han 108 leiki og skoraði 5 mörk.
Hann á landsleiki með unglingalandsliðum Englands en lék sinn fyrsta A landsleik fyrir bandaríska landsliðið árið 2020 og á nú að baki 27 landsleiki.
Hann er annar bandaríski landsliðsmaðurinn sem semur við Milan í sumar en Christian Pulisic gekk til liðs við félagið frá Chelsea í síðasta mánuði.
Musah fær treyju númer 80 hjá Milan.
???????? ???????????????????? ???????????????????? ????????
— AC Milan (@acmilan) August 4, 2023
Official Statement ?? https://t.co/sqDD3i6ouq
Comunicato Ufficiale ?? https://t.co/dxvgH53btp
#ACMQuest #SempreMilan pic.twitter.com/JEUEObVfPL




