Marley Blair í ensku utandeildina (Staðfest)

Siggi Raggi og Blair.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Siggi Raggi og Blair.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marley Blair, sem lék með Keflavík fyrri hluta tímabilsins, er genginn í raðir enska félagsins Farsley Celtic og mun leika með liðinu í ensku utandeildinni í vetur.
Farsley Celtic er í sjöttu efstu deild á Englandi, National League North.

Blair var látinn fara frá Keflavík í júní þar sem hann hafði ekki staðið undir væntingum.
„Í tilviki Blair þá var hann afskaplega ódýr útlendingur, ég vonaðist til að geta unnið meira með varnarleikinn hans því hann hefur hæfileika sóknarlega; skoraði á móti Víkingi og er góður að fara á menn einn á einn. Ég upplifði að ég var orðinn einn í því stríði að halda honum, að það væru allir pirraðir, var ekki að verjast nógu vel fyrir liðið. Við þurfum allir að stefna í sömu átt og eins þurftum við að losa pening til að geta fengið inn þá vonandi sterkari og betri mann," sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, um Blair í lok júní.
Blair lék tólf leiki í efstu deild og þrjá í bikar með Keflavík sumarið 2021 en var ekkert með í deildarkeppninni á síðasta tímabili. Hann er 23 ára enskur kantmaður sem var hjá Liverpool og Burnley áður en hann kom til Keflavíkur. Á þessu tímabili kom hann við sögu í tíu leikjum með Keflavík og skoraði eitt mark.