Fotbolti.net
04.08.23 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson

Diljá Mjöll og Harpa Karen í Aftureldingu (Staðfest)

Harpa Karen mætt í Aftureldingu

Harpa Karen mætt í Aftureldingu

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Hertz
Diljá Mjöll Aronsdóttir og Harpa Karen Antonsdóttir hafa báðar fengið félagaskipti yfir í Aftureldingu og verða því löglegar með liðinu í næsta leik í Lengjudeild kvenna.
Diljá er fædd 1997 og kemur frá Gróttu en hún á 86 leiki og 11 mörk að baki með liðinu deildarkeppni.

Hún spilaði síðast með Gróttu á síðasta ári en þá kom hún aðeins við sögu í einum leik í Mjólkurbikarnum.

Harpa Karen er fædd 1999 og kemur frá ÍH í Hafnarfirði. Hún spilaði með liðinu í 2. deildinni á siðasta ári og gerði þar tvö mörk í sjö leikjum.

Einnig hefur hún spilað fyrir Hauka, KR og KH, en hún ólst upp í Val. Harpa hefur spilað 49 leiki deildarleiki fyrir þessi félög og skorað fimm mörk.

Afturelding gerir sér vonir um að komast aftur upp í Bestu deildina en liðið er í 4. sæti með 23 stig.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.