Fotbolti.net
04.08.23 - 20:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Man Utd fær ungan bakvörð frá Watford (Staðfest)

Man Utd fær ungan bakvörð frá Watford (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bakvörðurinn Harry Amass er genginn til liðs við Manchester United en hann kemur til félagsins frá Watford. Hann kemur til með að spila með unglingaliðum United til að byrja með.

Amass er gríðarlegt efni en hann er aðeins 16 ára gamall. Hann hefur verið orðaður við Man Utd síðustu mánuði en talið er að hann hafi skrifað undir fjögurra ára samning.

Hann lék bæði með u18 og u21 árs liði Watford en hann var ónotaður varamaður hjá aðalliðinu þegar liðið féll úr leik í 3. umferð FA bikarsins á síðustu leiktíð eftir tap gegn Reading.

Hann er hluti af u16 landsliði Englands en búist er við að hann verði í u17 landsliðinu sem tekur þátt á HM í ár.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.