Disasi til Chelsea (Staðfest)

Disasi kemur frá Mónakó.

Mynd: EPA

Disasi kemur frá Mónakó.

Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Axel Disasi er orðinn leikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Chelsea. Disasi er 25 ára og er keyptur á 39 milljónir punda frá Mónakó.
Hann lék alla 38 deildarleiki Mónakó á síðasta tímabili.
Hann veitir enska félaginu aukna breidd í miðvarðastöðunum. Wesley Fofana er á meiðslalistanum hjá Chelsea og verður frá í einhvern tíma og því var ákveðið að ráðast í það að fá Disasi inn.

Disasi hefur spilað fjóra landsleiki fyrir Frakkland en hann spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Túnis á HM í Katar.
„Ég er virkilega spenntur fyrir því að vera orðinn hluti af þessari frábæru fjölskyldu. Ég vonast til að afreka stóra hluti hérna og vinna titla. Ég er mjög metnaðarfullur," segir Disasi við heimasíðu Chelsea.

Axel is ready to get to it! ???? pic.twitter.com/EQFipRjBnw
— Chelsea FC (@ChelseaFC) August 4, 2023