Markvarðarleit Luton lokið (Staðfest)

Mynd: Luton Town

Mynd: Luton Town
Luton Town er komið með markvörð fyrir komandi tímabil í ensku úrvalsdeildinni en belgíski leikmaðurinn Thomas Kaminski er kominn frá Blackburn Rovers.
Luton kom sér upp í ensku úrvalsdeildina með því að vinna Coventry City í úrslitaleik umspilsins undir lok síðasta tímabils.
Félagið hefur verið í leit að markverði í allt sumar og er hann nú fundinn.
Kaminski, sem er þrítugur, er genginn í raðir Luton frá Blackburn fyrir tæpar 3 milljónir punda.
Hann spilaði 118 leiki á þremur árum sínum hjá Blackburn en áður lék hann fyrir Gent, Kortrijk, Beerschot, Leuven og Anderlecht í heimalandinu ásamt því að hafa spilað nokkra leiki með FCK og Anorthosis Famagusta.
Luton mætir Brighton í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar þann 12. ágúst.

Welcome, @kaminski26! ????????#COYH pic.twitter.com/mQmHF34VIy
— Luton Town FC (@LutonTown) August 3, 2023