Fotbolti.net
03.08.23 - 21:52
Brynjar Ingi Erluson

Ajax kaupir leikmann frá Man City fyrir tólf milljónir punda (Staðfest)

Ajax kaupir leikmann frá Man City fyrir tólf milljónir punda (Staðfest)
Canon

Mynd: Ajax

Hollenska félagið Ajax gekk í dag frá kaupum á portúgalska vængmanninum Carlos Borges en hann kemur frá Englands- og Evrópumeisturum Manchester City.
Borges er 19 ára gamall og afrekaði aldrei að spila fyrir aðallið Man City.

Hann var á mála hjá félaginu í níu ár og var meðal annars markahæstur í U21 árs liðinu á síðasta tímabili með 21 mark er liðið vann tvöfalt.

West Ham hafði mikinn áhuga á að fá hann í sumar en Ajax kom inn og hafði betur í baráttunni.

Ajax greiðir 12 milljónir punda fyrir Borges en sú upphæð getur hækkað upp í 16 milljónir punda ef ákveðnum skilyrðum er mætt.

Samningur Borges hjá Ajax er til næstu fimm ára en þetta er fjórði leikmaðurinn sem Ajax fær í glugganum.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.