Siggi Raggi hættir hjá Keflavík eftir tímabilið (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Í kjölfar fréttar hér á Fótbolti.net þar sem því var velt upp hvort Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflavíkur, hefði ákveðið að hætta sem þjálfari liðsins í lok tímabilsins, hefur félagið, ásamt Sigga Ragga sjálfum, sent út sameiginlega yfirlýsingu.
Þar segir að samstarfi Keflavíkur og Sigga Ragga muni ljúka í október næstkomandi að loknu tímabilinu í Bestu deildinni. Tekið er fram að báðir aðilar hafi komist að samkomulagi um að best sé að leiðir skilji og að ákvörðunin sé tekin með vinsemd og virðingu beggja aðila fyrir hvorum öðrum.
Siggi Raggi hefur verið þjálfari liðsins í fjögur ár og undir hans stjórn endaði liðið í 7. sæti Bestu deildarinnar á síðasta ári sem var besti árangur liðsins í tólf ár.
Keflavík er í botnsæti Bestu deildarinnar þegar tíu umferðir eru eftir og eru sex stig upp í öruggt sæti. Liðið hefur ekki unnið leik síðan í fyrstu umferð sem fór fram á öðrum degi páska.

Sameiginleg yfirlýsing frá Keflavík og Sigga Ragga:
Knattspyrnudeild Keflavíkur og Sigurður Ragnar Eyjólfsson þjálfari meistaraflokks karla í Bestu deildinni hafa ákveðið að ljúka samstarfi sínu að loknu þessu keppnistímabili í október næstkomandi.
Keppnistímabilið í ár er fjórða keppnistímabil Sigurðar hjá félaginu og á hans fyrsta ári vann Keflavík Lengjudeildina og hefur síðan þá leikið í Bestu deildinni. Í fyrra endaði liðið í 7.sæti sem er besti árangur Keflavíkur síðastliðin 12 ár. Það er enn óljóst í hvaða sæti liðið lendir nú í ár en baráttan í Bestu deildinni er hörð og ennþá í gangi. Báðir aðilar hafa hins vegar komist að samkomulagi um að best sé að leiðir skilji að loknu móti í október, ákvörðunin er tekin með vinsemd og virðingu beggja aðila fyrir hvorum öðrum.
Áfram Keflavík!
Knattspyrnudeild Kefavíkur og Sigurður Ragnar Eyjólfsson.