FRÉTTIR01.09.2023, 08:20

Það er mikið umbreytingasumar í gangi hjá Leeds United eftir að félagið féll úr ensku úrvalsdeildinni fyrir nokkrum mánuðum síðan. Félagið hefur misst lykilmenn og fengið nýja leikmenn inn, en Glen Kamara er sá áttundi sem félagið fær til sín í sumar.

FRÉTTIR01.09.2023, 08:14
Miðvörðurinn Taylor Harwood Bellis er kominn á lánssamningi frá Manchester City til Southampton í Championship-deildinni.
Harwood-Bellis er 21 árs og var á láni hjá Burnley á síðasta tímabili. Hann vakti athygli fyrir framgöngu sína með enska U21 landsliðinu sem varð Evrópumeistari í sumar en hann var fyrirliði liðsins.
FRÉTTIR01.09.2023, 08:11
Tyrkneski markvörðurinn Altay Bayindir er kominn til Manchester United frá Fenerbahce. Hann skrifaði undir samning til júní 2027 en hægt er að framlengja samninginn um ár í viðbót.
Kaupverðið er 4,3 milljónir punda.
FRÉTTIR01.09.2023, 07:20

Lazio er búið að krækja í franska miðjumanninn Matteo Guendouzi á lánssamningi frá Marseille sem gildir út tímabilið.

FRÉTTIR31.08.2023, 23:21

Borussia Dortmund er búið að festa kaup á Niclas Füllkrug, þýskum framherja sem kemur til félagsins úr röðum Werder Bremen.

FRÉTTIR31.08.2023, 22:33

Burnley hefur farið mikinn á leikmannamarkaðinum í sumar og var að krækja í Han-Noah Massengo á frjálsri sölu frá Bristol City, en hann er þrettándi leikmaðurinn til að skrifa undir hjá meistaraflokki í sumar.

FRÉTTIR31.08.2023, 22:14

PSG er búið að ganga frá félagsskiptum Bradley Barcola til sín frá Lyon.

FRÉTTIR31.08.2023, 21:59

Nottingham Forest er búið að staðfesta félagsskipti brasilíska varnarmannsins Murillo frá Corinthians.

FRÉTTIR31.08.2023, 21:50

Luton Town eru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni og hafa þeir kynnt nýjan leikmann til leiks, varnarmanninn Teden Mengi.

FRÉTTIR31.08.2023, 18:52

Sheffield United er búið að krækja í Luke Thomas, 22 ára vinstri bakvörð frá Leicester City.

FRÉTTIR31.08.2023, 18:39

Crystal Palace er búið að festa kaup á Dean Henderson, markverði frá Manchester United, fyrir um 20 milljónir punda.

FRÉTTIR31.08.2023, 17:30
Það er kominn nýr Enso í úrvalsdeildina. Já Enso, ekki Enzo. Enso Gonzalez var í dag tilkynntur sem nýr leikmaður Wolves.
Enso er 18 ára örvfættur kantmaður frá Paragvæ sem Wolves kaupir á fimm milljónir punda frá Libertad. Hann skrifar undir fimm ára samning við enska félagið.
FRÉTTIR31.08.2023, 16:23
„Það er svolítið erfitt að gefa tímaramma, við vonumst til að sjá hann á vellinum í september. Hann fékk meiðsli undir fótinn sem erfitt er að meðhöndla en það gengur rosalega vel. Eins og staðan er núna og ef þetta heldur svona áfram þá leikur hann fyrsta leikinn í september," segir Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby þegar hann er spurður út í það hvenær búast megi við því að Gylfi Þór Sigurðsson leiki sinn fyrsta leik fyrir félagið.

Freyr var í viðtali við 433.is og segir að Gylfi þurfi að fá smá tíma til að komast í form eftir að hafa ekki spilað alvöru fótboltaleik í um tvö ár.

Freyr vonast til þess að í seinni hluta septembermánaðar geti Gylfi leikið sinn fyrsta leik.
FRÉTTIR31.08.2023, 15:55
Úlfarnir hafa keypt úrúgvæska varnarmanninn Santiago Bueno frá spænska liðinu Girona á 8,5 milljónir punda. Hann er 24 ára og hefur skrifað undir fimm ára samning.
Fyrr á þessu ári lék Bueno sína fyrstu landsleiki fyrir Úrúgvæ.
FRÉTTIR31.08.2023, 15:53
Þýska félagið Eintracht Braunschweig tilkynnti rétt í þessu að Þórir Jóhann Helgason væri genginn í raðir félagsins. Miðjumaðurinn kemur á láni frá ítalska félaginu Lecce út tímabilið.
Kaupmöguleiki er í lánssamningnum sem þýska félagið getur nýtt sér á meðan á lánsdvölinni stendur.
Þórir er 22 ára Hafnfirðingur sem lék bæði með Haukum og FH áður en hann var seldur frá Fimleikafélaginu til Lecce árið 2021. Félagið komst upp í A-deildina á fyrsta tímabili Þóris og hélt sér uppi í vor.
Alls hefur hann spilað 41 leik fyrir Lecce, skorað eitt mark og lagt upp eitt. Hann á að baki sextán landsleiki og hefur í þeim skorað tvö mörk.
FRÉTTIR31.08.2023, 15:21
Búlgarski miðjumaðurinn Ilia Gruev er genginn í raðir Leeds United frá Werder Bremen og gerði fjögurra ára samning við enska Championship félagið.
Gruev er 23 ára og hefur verið hjá þýska félaginu síðan 2015 þegar hann var í unglingaliðum félagsins.
FRÉTTIR31.08.2023, 14:17
Gylfi Þór Sigurðsson hefur skrifað undir eins árs samning við danska félagið Lyngby. Félagið tilkynnti það á samfélagsmiðlum rétt í þessu en hann stóðst læknisskoðun í gær.
Gylfi er að snúa aftur í fótboltann eftir rúmlega tveggja ára fjarveru.
FRÉTTIR31.08.2023, 14:11
Viðar Ari Jónsson er genginn í raðir Hamarkameratene í Noregi en í dag var tilkynnt að hann hefði skrifað undir samning út næsta tímabili.
Viðar gekk í raðir FH í lok síðasta mánaðar og skrifaði þá undir samning sem gerði honum kleift að fara erlendis án ef spennandi tilboð kæmi þaðan. Hann er 29 ára og á að baki sjö landsleiki.
Viðar spilaði fjóra leiki fyrir FH í þessum mánuði og skoraði eitt mark. FH fékk sjö stig úr leikjunum fjórum.
Hjá HamKam hittir Viðar Ari fyrir KA-manninn Brynjar Inga Bjarnason sem gekk í raðir félagsins í upphafi árs frá Vålerenga. Brynjar hefur verið í byrjunarliði liðsins í tveimur síðustu leikjum sem báðir hafa unnist.
HamKam er sem stendur í 11. sæti Eliteserien, fimm stigum fyrir ofan fallumspilssæti. Næsti leikur liðsins er gegn Bodö/Glimt á sunnudag.
FRÉTTIR31.08.2023, 12:19
Liverpool hefur lánað varnarmanninn Nathaniel Phillips til Skotlandsmeistara Celtic í Glasgow. Samkomulagið gildir til janúar.
Koma Phillips er kærkomin viðbót fyrir Celtic sem hefur lent í meiðslavandræðum í öftustu línu.
FRÉTTIR31.08.2023, 10:27
Belgíski sóknarmaðurinn Romelu Lukaku er orðinn leikmaður ítalska félagsins Roma. Hann kemur til Jose Mourinho og lærisveina á lánssamningi frá Chelsea sem gildir út tímabilið.
„Móttökurnar sem ég hef fengið frá félaginu og stuðningsmönnum hafa gert mig spenntan. Þær hafa gefið mér enn meiri eldmóð," segir hinn þrítugi Lukaku við heimasíðu Roma.
Hann hefur leikið á láni hjá Inter tvívegis, varð Ítalíumeistari með liðinu 2021 og bikarmeistari á síðasta tímabili. Þá hjálpaði hann liðinu að komast í úrslitaleik Meistaradeildarinnar fyrr á þessu ári.