Freysi vonar að Gylfi spili sinn fyrsta leik fyrir Lyngby í september

Freyr Alexandersson.

Mynd: Getty Images

Mynd: Lyngby

Freyr Alexandersson.

Mynd: Getty Images
„Það er svolítið erfitt að gefa tímaramma, við vonumst til að sjá hann á vellinum í september. Hann fékk meiðsli undir fótinn sem erfitt er að meðhöndla en það gengur rosalega vel. Eins og staðan er núna og ef þetta heldur svona áfram þá leikur hann fyrsta leikinn í september," segir Freyr Alexandersson þjálfari Lyngby þegar hann er spurður út í það hvenær búast megi við því að Gylfi Þór Sigurðsson leiki sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Freyr var í viðtali við 433.is og segir að Gylfi þurfi að fá smá tíma til að komast í form eftir að hafa ekki spilað alvöru fótboltaleik í um tvö ár.
Freyr vonast til þess að í seinni hluta septembermánaðar geti Gylfi leikið sinn fyrsta leik.

„Hann er ekki búin að æfa með liðinu, hann hefur æft með styrktarþjálfara og og sjúkraþjálfara. Hann er búinn að vinna eins og brjálæðingur, sex tíma á dag í líkamlegri þjálfun og meðhöndlun. Eins og Gylfa er einum lagið. Hann hefur gert þetta framar vonum, hann byrjar að æfa á vellinum á morgun en lítið með liðinu fyrr en í lok næstu viku."
„Hann er í mjög góðu líkamlegu standi, kemur vel út úr öllum prófum. Hann hefur alltaf hugsað vel um sig, við vinnum faglega með honum. Hann fer í gegnum undirbúningstímabil næstu vikurnar og svo komum við honum í leikform."
Freyr segir gríðarlega athygli á félaginu vegna komu Gylfa.
„Gylfi er stórstjarna, það er langt síðan að stórstjarna hefur komið til Lyngby," segir Freyr í samtali við 433.is.
Sjá einnig:
Gylfi Sig til Lyngby (Staðfest) - Kom siglandi í kynningarmyndbandinu
Gylfi í viðtali: Get vonandi gefið af mér með reynslu og gæðum

Heimild: 433.is

Mynd: Lyngby