Tijjani Reijnders kominn til Milan (Staðfest)

AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Tijjani Reijnders til félagsins frá AZ Alkmaar fyrir rúmar 20 milljónir evra.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögnum skilaði 24447 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Tijjani Reijnders til félagsins frá AZ Alkmaar fyrir rúmar 20 milljónir evra.

Celtic er að undirbúa sig fyrir komandi átök í Skotlandi og Evrópu og þarf að styrkja hópinn sinn eftir söluna á portúgalska kantmanninum Jota til Sádí-Arabíu.

Sheffield United er búið að krækja í þriðja leikmann sumarsins. Bénie Traoré er genginn í raðir félagsins frá meistaraliði BK Häcken í Svíþjóð.

Jóhannes Karl Bárðarson mun leika með Þrótti Vogum seinni hluta sumars eftir að hafa varið fyrri hlutanum á láni hjá Ægi í fallbaráttu Lengjudeildarinnar.

Inter er búið að staðfesta komu Juan Cuadrado til félagsins á frjálsri sölu frá Juventus.

Sönderjyske hefur staðfest að Kristall Máni Ingason sé orðinn nýr leikmaður félagsins. Hann kemur frá Rosenborg og í hina áttina fer Emil Frederiksen. Kristall skrifar undir þriggja ára samning við Sönderjyske og er því samningsbundinn fram á sumarið 2026. Hann gekk í raðir Rosenborg í ágúst í fyrra frá Víkingi en náði ekki að blómstra hjá félaginu og var hann heldur betur ekki í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum norska félagsins.
Kvennalið Selfoss hefur styrkt sig fyrir seinni hluta tímabilsins í Bestu deild kvenna.
Kristófer Jónsson er búinn að fá félagaskipti aftur í Val eftir að hafa verið á láni hjá Venezia á Ítalíu.
Knattspyrnudeild Njarðvíkur hefur náð samkomulagi við Gunnar Heiðar Þorvaldsson um hann taki við sem aðalþjálfari meistaraflokks karla út leiktíðina 2023. Það var greint frá því fyrst hér á Fótbolta.net í gær að Gunnar Heiðar væri í viðræðum við Njarðvík.
Leeds United hefur fengið velska landsliðsmanninn Ethan Ampadu frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Þessi 22 ára varnarmaður gerir fjögurra ára samning. Sagt er að Leeds borgi 7 milljónir punda fyrir leikmanninn og sú upphæð getur hækkað eftir ákvæðum.
Burnley hefur fengið svissneska framherjann Zeki Amdouni frá Basel en kaupverð er ekki uppgefið. Þessi 22 ára leikmaður skoraði sjö mörk í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Burnley sem endurheimti á síðasta tímabili sæti í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Berg Guðmundsson er einn af leikmönnum liðsins.
Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið til sín miðjumanninn Oriol Romeu frá Girona en þessi 31 árs leikmaður gerir þriggja ára samning. Romeu kom á sínum tíma upp úr hinni frægu La Masia akademíu Barcelona en spilaði aðeins tvo leiki fyrir aðalliðið 2010-11, undir stjórn Pep Guardiola.
Spænski varnarmaðurinn Jordi Alba hefur skrifað undir samning við Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni og er því orðinn liðsfélagi Lionel Messi og Sergio Busquets á ný en þeir gerðu góða hluti saman með Barcelona. Alba er 34 ára bakvörður og hefur Jorge Mas, forseti Inter Miami, staðfest að hann hafi skrifað undir samning og ætti að vera kominn með leikheimild þegar leikið verður gegn Atlanta á þriðjudaginn.

Steinar Logi Þórðarson er genginn til liðs við Magna

Ísak Andri Sigurgeirsson er genginn til liðs við Norrköping frá Stjörnunni. Ísak skrifar undir samning út tímabilið 2026.

Kim Min-Jae er genginn í raðir Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og skrifar undir fimm ára samning við félagið. Suður-kóreski varnarmaðurinn var mikið orðaður við Manchester United í sumar en ákvað að ganga í raðir Bayern. „Bayern er draumur hvers fótboltamanns. Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni í Munchen. Þetta er nýtt upphaf fyrir mig. Ég mun halda áfram að þróa minn leik hér. Það var ljóst frá fyrsta samtali hversu áhugasamt félagið var að fá mig. Mitt fyrsta markmið er að spila mikið af leikjum. Auk þess, þá vil ég vinna eins marga titla og hægt er," segir Kim.
Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Elías Rafn Ólafsson spilar með portúgalska liðinu CD Mafra á komandi tímabili. Midtjylland hefur staðfest þetta en danska félagið lánar hann og segir á heimasíðu sinni að með þessu haldi þróun hans áfram og hann verði reynslumeiri þegar hann snýr aftur að ári liðnu.
Marcus Rashford, framherji Manchester United, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið. Rashford er 25 ára gamall og hefur verið hjá félaginu frá átta ára aldri, hann lék sinn fyrsta leik árið 2015 og hefur til þessa skorað 123 mörk í 359 keppnisleikjum.
HK hefur gengið frá samningi við bandaríska kantmanninn Chaylyn Hubbard. Samningurinn gildir út næstu leiktíð.
Stjarnan hefur gengið frá samningi við Huldu Hrund Arnarsdóttur sem kemur til félagsins frá Danmörku.