Fotbolti.net
19.07.23 - 23:30
Ívan Guðjón Baldursson

Tijjani Reijnders kominn til Milan (Staðfest)

Tijjani Reijnders kominn til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

AC Milan er búið að staðfesta félagaskipti Tijjani Reijnders til félagsins frá AZ Alkmaar fyrir rúmar 20 milljónir evra.

Reijnders, sem er 25 ára gamall, gerir fimm ára samning við ítalska stórveldið.

Hann leikur sem miðjumaður og hefur verið algjör lykilmaður í liði AZ undanfarin ár, en á síðustu leiktíð skein hann skært bæði í holleska boltanum og Sambandsdeildinni.

Reijnders er fenginn til að hjálpa við að fylla í skarðið sem Sandro Tonali skilur eftir, en Milan er einnig búið að krækja í Ruben Loftus-Cheek á miðjuna. Auk þeirra eru Christian Pulisic, Luka Romero, Marco Sportiello og Lorenzo Colombo komnir til félagsins.

Reijnders fær treyju númer 14 hjá Milan, sem var treyjunúmerið hjá Tiemoué Bakayoko á sinni dvöl hjá félaginu.

Tijjani Reijnders kominn til Milan (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.