Zeki Amdouni nýr liðsfélagi Jóa Berg hjá Burnley (Staðfest)

Amdouni í landsleik með Sviss.

Mynd: EPA

Amdouni í landsleik með Sviss.

Mynd: EPA
Burnley hefur fengið svissneska framherjann Zeki Amdouni frá Basel en kaupverð er ekki uppgefið. Þessi 22 ára leikmaður skoraði sjö mörk í Sambandsdeildinni á síðasta tímabili.
Hann skrifaði undir fimm ára samning við Burnley sem endurheimti á síðasta tímabili sæti í ensku úrvalsdeildinni. Jóhann Berg Guðmundsson er einn af leikmönnum liðsins.

Amdouni skorað 12 mörk í svissnesku deildinni og er með fimm mörk í fjórum leikjum fyrir Sviss í undankeppni EM.
„Zeki er flugbeittur sóknarmaður sem hefur verið á radarnum hjá okkur í nokkurn tíma. Hann er með mikla hæfileika í að eiga úrslitasendingar, leggur á sig mikla vinnu og skorar sjálfur slatta," segir Vincent Kompany, stjóri Burnley,
„Hann er mjög snjall leikmaður sem býr yfir mikilli tækni og vinnusemi. Hann er afskaplega hæfileikaríkur."
Amdouni fékk lof fyrir sinn fyrsta landsleik með Sviss, 2-1 sigur gegn Tékkum í Þjóðadeildinni í september. Hann opnaði svo markareikninginn fyrir þjóð sína í leik tvö, 5-0 sigri í Belarús í undankeppni EM. Hann bætti svo fjórum mörkum við í leikjum gegn Ísrael, Andorra og Rúmeníu.
Þá skoraði hann tvö mörk á EM U21 landsliða í sumar, annað þeirra í tapi Sviss gegn Spáni 2-1 í framlengdum leik í 8-liða úrslitum.
„Ég hlakka til að byrja. Ég veit að enska úrvalsdeildin er sú besta í heimi og þetta verður ekki auðvelt. Ég tel mig þó geta gert góða hluti hér," segir Amdouni.
Fyrr í sumar hafði Burnley keypt írska varnarmanninn Dara O'Seha frá West Bromwich Albion og markvörðinn James Trafford frá Manchester City.

Settling into new surroundings ???? pic.twitter.com/RvFV27EH7K
— Burnley FC ???? (@BurnleyOfficial) July 19, 2023