Ampadu til Leeds (Staðfest)

Ethan Ampadu hefur spilað 44 landsleiki fyrir Wales.

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur fengið velska landsliðsmanninn Ethan Ampadu frá enska úrvalsdeildarfélaginu Chelsea. Þessi 22 ára varnarmaður gerir fjögurra ára samning.
Sagt er að Leeds borgi 7 milljónir punda fyrir leikmanninn og sú upphæð getur hækkað eftir ákvæðum.

Ampadu lék aðeins tólf leiki fyrir Chelsea eftir að hann kom til félagsins frá Exeter City í júlí 2017.
Hann var lánaður til Sheffield United og þýska liðsins RB Leipzig og hefur spilað tvö síðustu tímabil á Ítalíu; með Venezia og Spezia.
Leeds féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili og er Ampadu fyrsti leikmaðurinn sem Daniel Farke, nýr stjóri Leeds, fær til félagsins.
Varnarmennirnir Rasmus Kristensen, Diego Llorente og Robin Koch yfirgefa allir Leeds á lánssamningum eftir fall liðsins. Koma Ampadu gefur Farke þó nýjan möguleika í varnarlínuna en hann getur einnig leikið sem varnartengiliður á miðjunni.
Ampadu er sonur Kwame Ampadu, fyrrum leikmanns Arsenal, Swansea og Exeter.

???? #WelcomeEthan pic.twitter.com/EvNeBn9GzJ
— Leeds United (@LUFC) July 19, 2023