Fotbolti.net
19.07.23 - 19:49
Ívan Guðjón Baldursson

Liðsfélagi Valgeirs til Sheffield United (Staðfest)

Liðsfélagi Valgeirs til Sheffield United (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Sheffield United er búið að krækja í þriðja leikmann sumarsins. Bénie Traoré er genginn í raðir félagsins frá meistaraliði BK Häcken í Svíþjóð.

Traore er tvítugur framherji frá Fílabeinsströndinni sem hefur skorað 15 mörk og gefið 5 stoðsendingar í 20 leikjum með Häcken á tímabilinu, en þar er hann liðsfélagi Valgeirs Lunddal Friðrikssonar.

Hann er annar leikmaðurinn sem Sheffield sækir til Skandinavíu eftir kaup á Anis Ben Slimane frá Bröndby á dögunum.

Sheffield er talið borga um 5 milljónir evra fyrir Traoré eftir að hafa aðeins notað 3 milljónir í Slimane. 

Varnarmaðurinn Yasser Larouci er einnig kominn til félagsins í sumar, á láni frá Troyes.

Liðsfélagi Valgeirs til Sheffield United (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.