Fotbolti.net
19.07.23 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Kristófer snýr aftur í Val (Staðfest)

Kristófer er mættur aftur á Hlíðarenda.

Kristófer er mættur aftur á Hlíðarenda.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Kristófer Jónsson er búinn að fá félagaskipti aftur í Val eftir að hafa verið á láni hjá Venezia á Ítalíu.
Kristófer er tvítugur miðjumaður sem gekk í raðir Vals fyrir tímabilið 2021 frá Haukum en var svo lánaður til Venezia um sumarið.

Í vetur kom Kristófer við sögu í einum bikarleik með aðalliði Venezia, var sex sinnum á bekknum í B-deildinni en spilaði annars alla leiki með varaliði félagsins þegar hann var heill.

Glugginn á Íslandi opnaði í gær og fær Kristófer þá leikheimild með Valsmönnum. Núgildandi samningur Kristófers við Val rennur út eftir tímabilið 2025.

Kristófer er mjög efnilegur miðjumaður sem hefur verið hluti af U21 landsliðshópi Íslands.

Kristófer getur spilað næsta leik Vals gegn Fram á sunnudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.