Selfoss sækir bandarískan miðjumann (Staðfest)

Selfoss fagnar sigri í sumar.

Mynd: Hrefna Morthens

Selfoss fagnar sigri í sumar.

Mynd: Hrefna Morthens

Kvennalið Selfoss hefur styrkt sig fyrir seinni hluta tímabilsins í Bestu deild kvenna.
Félagið er búið að semja við hina 23 ára gömlu Abbey Burdette sem kemur frá Bandaríkjunum.
Hún lék síðast í háskólaboltanum með University of Tennessee en hún var að útskrifast fyrir nokkrum mánuðum. Það er mjög vel talað um hana fyrir það sem hún gerði fyrir skólaliðið en hún var einn mikilvægasti leikmaður þess.
Hún er miðjumaður sem kemur til með að styrkja Selfoss vel í baráttunni sem er framundan.
Selfoss er sem stendur á botni Bestu deildarinnar, fimm stigum frá öruggu sæti.