Fotbolti.net
19.07.23 - 18:56
Ívan Guðjón Baldursson

Cuadrado kominn til Inter (Staðfest)

Cuadrado kominn til Inter (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Inter er búið að staðfesta komu Juan Cuadrado til félagsins á frjálsri sölu frá Juventus.

Kólumbíumaðurinn gerir eins árs samning við Inter en hann er orðinn 35 ára gamall.

Þessi skipti koma mörgum á óvart þar sem Cuadrado er einn af hötuðustu andstæðingum Inter, ásamt Romelu Lukaku. 

Hörðustu stuðningsmenn Inter eru ekki sérlega sáttir með þessi félagsskipti, en Cuadrado býr þó yfir gífurlega mikilli reynslu eftir rúmlega 300 leiki í efstu deild á Ítalíu.

Hann spilaði 47 leiki með Juve á síðustu leiktíð og er enn að spila fyrir landslið Kólumbíu, þar sem hann á 115 leiki að baki.

Cuadrado er kantmaður að upplagi en hefur verið að spila mikið sem bakvörður að undanförnu sökum aldurs, og staðið sig feykivel.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.