Fotbolti.net
19.07.23 - 17:29
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kristall Máni til Sönderjyske (Staðfest)

Kristall Máni kominn í dönsku B-deildina.

Kristall Máni kominn í dönsku B-deildina.

Canon

Mynd: Sönderjyske

Sönderjyske hefur staðfest að Kristall Máni Ingason sé orðinn nýr leikmaður félagsins. Hann kemur frá Rosenborg og í hina áttina fer Emil Frederiksen.

Kristall skrifar undir þriggja ára samning við Sönderjyske og er því samningsbundinn fram á sumarið 2026. Hann gekk í raðir Rosenborg í ágúst í fyrra frá Víkingi en náði ekki að blómstra hjá félaginu og var hann heldur betur ekki í uppáhaldi hjá stuðningsmönnum norska félagsins.
Hann er 21 árs sóknarmaður sem var á mála hjá FC Kaupmannahöfn áður en hann gekk í raðir Víkings.

„Hann er mjög hæfileikaríkur leikmaður sem hefur verið í sviðsljósinu hjá stórum félögum snemma á sínum ferli, en þaðer erfitt fyrir unga leikmenn að fá áframhaldandi spiltíma hjá stórum félögum eins og FCK og Rosenborg, þess vegna erum við hér hjá Sönderjyske viss um að þetta sé góður staður fyrir hann til að taka næstu skref á ferlinum," segir Esben Hansen yfirmaður íþróttamála hjá Sönderjyske.

„Með komu hans fáum við leikmann sem hægt er að nota í nokkrum sóknarstöðum og hann kemur með aðra vídd í þegar öfluga sóknarlínu. Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann prófað mikið á sínum ferli, á fjóra landsleiki og við erum spenntir að sjá hæfileika hans skína enn frekar hér hjá Sönderjyske," sagði Hansen.

Hjá Sönderjyske hittir Kristall fyrir Atla Barkarson sem var liðsfélagi Kristals hjá Víkingi. Landsliðsmaðurinn Daníel Leó Grétarsson er einnig leikmaður Sönderjyske. Kristall er 13. Íslendingurinn í sögu Sönderjyske sem er í dönsku B-deildinni.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.