Fotbolti.net
18.07.23 - 17:09
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Kim til Bayern (Staðfest) - Draumur hvers leikmanns

Kim til Bayern (Staðfest) - Draumur hvers leikmanns
Canon

Mynd: Bayern Munchen

Kim Min-Jae er genginn í raðir Þýskalandsmeistara Bayern Munchen og skrifar undir fimm ára samning við félagið.

Suður-kóreski varnarmaðurinn var mikið orðaður við Manchester United í sumar en ákvað að ganga í raðir Bayern.

„Bayern er draumur hvers fótboltamanns. Ég er mjög spenntur fyrir framtíðinni í Munchen. Þetta er nýtt upphaf fyrir mig. Ég mun halda áfram að þróa minn leik hér. Það var ljóst frá fyrsta samtali hversu áhugasamt félagið var að fá mig. Mitt fyrsta markmið er að spila mikið af leikjum. Auk þess, þá vil ég vinna eins marga titla og hægt er," segir Kim.
Hann er 26 ára miðvörður sem vann ítölsku deildina með Napoli í vetur. Hann átti að leysa Kalidou Koulibaly af hjá Napoli en gerði gott betur og blómstraði í liði meistaranna.

Hann á að baki 49 landsleiki fyrir Suður-Kóreu og hefur í þeim skorað þrjú mörk.

Kaupverðið er talið vera 50-60 milljónir evra en Napoli greiddi tæplega 20 milljónir evra fyrir hann fyrir einu ári síðan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.