Fotbolti.net
19.07.23 - 09:28
Elvar Geir Magnússon
Jói útherji

Jordi Alba til Messi og félaga í Inter Miami (Staðfest)

Jordi Alba og Sergio Busquets eru orðnir liðsfélagar.

Jordi Alba og Sergio Busquets eru orðnir liðsfélagar.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski varnarmaðurinn Jordi Alba hefur skrifað undir samning við Inter Miami í bandarísku MLS-deildinni og er því orðinn liðsfélagi Lionel Messi og Sergio Busquets á ný en þeir gerðu góða hluti saman með Barcelona.

Alba er 34 ára bakvörður og hefur Jorge Mas, forseti Inter Miami, staðfest að hann hafi skrifað undir samning og ætti að vera kominn með leikheimild þegar leikið verður gegn Atlanta á þriðjudaginn.
Alba yfirgaf Barcelona í sumar þegar samningur hans rann út en hann var yfir tíu ár hjá spænsku risunum. Hann hjálpaði liðinu að vinna sex Spánarmeistaratitla og Meistaradeildina 2015.

Messi æfði með Miami í fyrsta sinn á þriðjudaginn og mun væntanlega spila sinn fyrsta leik á föstudag, deildabikarleik gegn Cruz Azul frá Mexíkó.

Inter Miami er einnig að vinna að því að fá Luis Suarez en þessi 36 ára úrúgvæski sóknarmaður er sem stendur hjá Gremio í Brasilíu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.