Oriol Romeu til Barcelona (Staðfest)

Romeu í leik með Girona.

Mynd: Getty Images

Romeu í leik með Girona.

Mynd: Getty Images
Spánarmeistarar Barcelona hafa fengið til sín miðjumanninn Oriol Romeu frá Girona en þessi 31 árs leikmaður gerir þriggja ára samning.
Romeu kom á sínum tíma upp úr hinni frægu La Masia akademíu Barcelona en spilaði aðeins tvo leiki fyrir aðalliðið 2010-11, undir stjórn Pep Guardiola.

Romeu var hjá Girona á síðasta tímabili og spilaði 33 leiki í La Liga þegar katalónska liðið hafnaði í 10. sæti.
Chelsea keypti Romeu sumarið 2011 en hann stóð ekki undir væntingum og var seldur til Southampton eftir lánsdvalir hjá Valencia og Stuttgart.
Romeu yfirgaf Southampton í sepmteber 2022 eftir að hafa spilað 256 leiki fyrir félagið. Hann gerði þá þriggja ára samning við Girona.
Romeu er þriðji leikmaðurinn sem Barcelona kaupir í sumar, á eftir Ilkay Gundogan og Inigo Martinez sem komu á frjálsum sölum.

ORIOL ROMEU RETURNS TO BARÇA! ?????? pic.twitter.com/2l3HKvnA2j
— FC Barcelona (@FCBarcelona) July 19, 2023