Rashford hjá United til 2028 (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Marcus Rashford, framherji Manchester United, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.
Rashford er 25 ára gamall og hefur verið hjá félaginu frá átta ára aldri, hann lék sinn fyrsta leik árið 2015 og hefur til þessa skorað 123 mörk í 359 keppnisleikjum.

Hann er Englendingur sem hefur skorað sextán landsliðsmörk í 53 landsleikjum. Viðræður við Rashford hafa staðið í talsverðan tíma og var hann talsvert orðaður við PSG í Frakklandi og Sádi-Arabíu.
Hann ákvað að vera áfram hjá United. Daily Mail segir að Rasfhord fái 300 þúsund pund i vikulaun en Mirror segir hann fá 400 þúsund pund í vikulaun. Hann var með um 200 þúsund pund í vikulaun.
„Sem stuðningsmaður Man Utd allt mitt líf, þá þekki ég ábyrgðina sem fylgir því að bera merkið á brjóstinu. Ég hef þegar upplifað æðislega tíma hjá þessu stórkostlega félagi, en það er margt í viðbót til að afreka og ég er mjög ákveðinn í að vinna fleiri titla á komandi árum," sagði Rashford m.a. við undirskrift.

Rashford: “I couldn’t be more excited for the future under this manager.” [mu] #mufc pic.twitter.com/0SL8wIulJs
— The United Stand (@UnitedStandMUFC) July 18, 2023