Þróttur Vogum fær Jóhannes frá Víkingi R. (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl Bárðarson mun leika með Þrótti Vogum seinni hluta sumars eftir að hafa varið fyrri hlutanum á láni hjá Ægi í fallbaráttu Lengjudeildarinnar.
Jóhannes Karl er hægri bakvörður og kantur og er uppalinn hjá Víkingi. Hann er aðeins 20 ára gamall og er fenginn til að hjálpa Vogamönnum í toppbaráttu 2. deildar.
Þróttur er þar í fimmta sæti með 19 stig úr 12 umferðum, þremur stigum eftir öðru sætinu.
„Jói á ættir að rekja til heimavallar hamingjunnar í Fossvogi og Þórshafnar á Langanesi. Það er góð blanda fyrir Voga," segir meðal annars í tilkynningu frá Þrótti.





