Fotbolti.net
18.07.23 - 15:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

HK semur við bandarískan kantmann (Staðfest)

HK semur við bandarískan kantmann (Staðfest)
Canon

Mynd: HK

Hertz
HK hefur gengið frá samningi við bandaríska kantmanninn Chaylyn Hubbard. Samningurinn gildir út næstu leiktíð.
Chaylyn er 23 ára og kemur frá TCU í Bandaríkjunum. Knattspyrnulið skólans er á meðal sterkustu liða í Bandaríkjunum.

Hún er afar fjölhæfur leikmaður og getur leyst margar stöður á vellinum en spilar mest kantstöðurnar. Síðustu mánuði hefur hún verið á mála hjá Portland Thorns í NWSL, atvinnumannadeild USA.

„Við fögnum komu Chaylyn sem er gríðarlegur liðsstyrkur fyrir okkur HK-inga," segir í tilkynningu frá Kópavogsfélaginu.

HK er sem stendur í þriðja sæti Lengjudeildar kvenna, aðeins tveimur stigum frá öðru sætinu. Liðið stefnir klárlega á það að komast upp um deild í sumar, upp í Bestu deildina.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.