Atli Rafn heim í Þorlákshöfn (Staðfest)

Atli Rafn Guðbjartsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Ægi.

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.
Niðurstöður
Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25186 niðurstöðum.
Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Atli Rafn Guðbjartsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Ægi.

Bryndís Rún Þórólfsdóttir hefur skrifað undir nýjan samning við ÍA og mun því leika með liðinu í 2. deildinni næsta sumar.

Lee Mason er hættur sem VAR dómari í ensku úrvalsdeildinni. Þetta tilkynnti ensku dómarasamtökin í kvöld en ákvörðunin kemur eftir afdrifarík mistök hans í leik Arsenal og Brentford um síðustu helgi.

Stjarnan hefur samið við Eyrúnu Völu Harðardóttir um að leika með félaginu á næstunni. Eyrún er unglingalandsliðskona sem á að baki tvo leiki með U19 landsliði Íslands, en hún kemur til Stjörnunnar frá nágrönnunum í Breiðabliki.
Selfoss tilkynnti í dag að félagið hefði gert tveggja ára samning við Adrian Sanchez. Sanchez er spænskur varnarmaður sem kemur til liðsins eftir að hafa spilað með AD Villaviciosa de Odon á Spáni í vetur. Hann lék hins vegar með Víkingi Ólafsvík á síðasta tímabili og skoraði eitt mark í nítján leikjum í 2. deild.
Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að Oliver Stefánsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið. Greint var frá því fyrir viku síðan að Oliver væri á leið í Breiðablik en nú er allt frágengið og búið að gang a frá samningi. Samningurinn gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Norrköping þar sem hann hefur verið á mála frá því haustið 2018.
Kvennalið Fram hefur fengið tvo öfluga leikmenn frá Bandaríkjunum en þær Grace Santos og Breukelen Woodard hafa gert samning um að spila með félaginu á komandi tímabili.
Leiknismenn hafa fengið góða styrkingu fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni en þeir Daníel FInns Matthíasson og Ólafur Flóki Stephensen eru komnir til félagsins á láni út tímabilið.
Spezia er án þjálfara eftir að hafa rekið Luca Gotti úr starfi í gær en þetta kom fram í tilkynningu félagsins.
Ítalski þjálfarinn Davide Nicola tókst að afreka það að vera rekinn frá Salernitana tvisvar á 31 degi en ítalska félagið staðfesti brottför hans í gær og er Paulo Sousa nýr þjálfari liðsins.
Franski miðjumaðurinn Hamdja Kamara mun spila með Dalvík/Reyni í sumar en hann kemur til félagsins frá Reyni Sandgerði.

FH hefur staðfest komu Kjartans Kára Halldórssonar til félagsins á lánssamningi frá FK Haugesund. Þessi 19 ára gamli leikmaður var markahæstur í Lengjudeildinni síðasta sumar þegar hann lék með Gróttu.

Valencia á Spáni hefur ráðið Ruben Baraja sem nýjan stjóra en þessi fyrrum miðjumaður liðsins er í dag 47 ára og er tíundi fastráðni stjóri félagsins á innan við níu árum. Gennaro Gattuso var rekinn frá Valencia í síðasta mánuði, eftir aðeins sjö mánuði í starfi.
Andri Rúnar Bjarnason er genginn í raðir Vals. Samningurinn er til eins árs með möguleika á framlengingu. Andri lék með ÍBV í fyrra en rifti samningi sínum eftir tímabilið. Hann er 32 ára sóknarmaður sem skoraði 10 mörk í 25 leikjum fyrir Eyjamenn á síðasta tímabili.
Markvörðurinn Atli Gunnar Guðmundsson hefur fengið félagaskipti í KFK sem verður í 4. deildinni í vetur. KFK er stórhuga og ætlar sér upp úr 4. deildinni í sumar. Atli varði mark FH í tólf deildarleikjum og fimm bikarleikjum, þar á meðal í sjálfum bikarúrslitaleikurinn gegn Víkingi.
Njarðvík hefur samið við portúgalska sóknarmanninn Rafael Victor um að leika með félaginu í sumar.

Vitor Vieira Thomas, miðjumaður fæddur 1999, er kominn aftur til uppeldisfélagsins KF eftir að hafa reynt fyrir sér með Víkingi Ólafsvík.

Svissneski landsliðsbakvörðurinn Kevin Mbabu heldur heim til uppeldisfélagsins Servette, þar sem hann mun leika á láni frá Fulham út tímabilið.

Keflavík tilkynnti í dag að félagið hefði fengið ástralskan sóknarmann í sínar raðir. Keflvíkingar þekkja það vel að vera með ástralskan sóknarmann því Joey Gibbs lék með liðinu við góðan orðstír síðustu tímabil en ákvað að söðla um í vetur og semja við Stjörnuna. Gibbs skoraði samanlagt 41 mark í 68 deildar- og bikarleikjum með Keflavík.
Höttur/Huginn, sem leikur í 2. deild karla, hefur staðfest býsna áhugaverð félagaskipti því félagið hefur samið við miðjumanninn Dani Ndi um að leika með félaginu í sumar.