Fotbolti.net
14.02.23 - 07:20
Ívan Guðjón Baldursson

Vitor aftur í KF (Staðfest)

Vitor aftur í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vitor Vieira Thomas, miðjumaður fæddur 1999, er kominn aftur til uppeldisfélagsins KF eftir að hafa reynt fyrir sér með Víkingi Ólafsvík.

Vitor Vieira gekk til liðs við 2. flokk Vals og KH fyrir fjórum árum síðan en sneri heim til Fjallabyggðar og hjálpaði KF að komast upp úr 3. deild sumarið 2019.

Hann skipti í kjölfarið til Ólafsvíkur en er núna kominn aftur heim í KF sem er mikið fagnaðarefni fyrir heimamenn.

Vitor gæti reynst frábær liðsstyrkur fyrir KF sem leikur í 2. deild í sumar. Liðið fékk 26 stig úr 22 leikjum í fyrra.

Vitor aftur í KF (Staðfest)
Canon

Mynd: KF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.