Fotbolti.net
16.02.23 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson

Rekinn í annað sinn á einum mánuði (Staðfest)

Davide Nicola

Davide Nicola

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski þjálfarinn Davide Nicola tókst að afreka það að vera rekinn frá Salernitana tvisvar á 31 degi en ítalska félagið staðfesti brottför hans í gær og er Paulo Sousa nýr þjálfari liðsins.
Nicola var ráðinn til Salernitana í febrúar á síðasta ári og tókst honum þar að bjarga liðinu frá falli á ævintýralegan hátt.

Gengi liðsins hefur ekki verið upp á marga fiska undanfarið og var Nicola rekinn eftir 8-2 tapið gegn Atalanta fyrir mánuði síðan.

Tveimur dögum síðar sáu stjórnarmenn að sér og ákváðu að ráða hann aftur til félagsins.

Frammistaða liðsins batnaði ekki og var tilkynnt í gær að Nicola væri nú farinn frá félaginu. Því var hann rekinn frá félaginu tvisvar á einum mánuði en portúgalski þjálfarinn Paulo Sousa var tilkynntur sem nýr þjálfari liðsins í kjölfarið.

Sousa þjálfaði síðast Flamengo í Brasilíu en hann hefur einnig þjálfað lið á borð við Fiorentina, Bordeaux, Leicester, Swansea, QPR ásamt því að stýra pólska landsliðinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.