Dalvík/Reynir fær Kamara frá Reyni S. (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Franski miðjumaðurinn Hamdja Kamara mun spila með Dalvík/Reyni í sumar en hann kemur til félagsins frá Reyni Sandgerði.
Kamara er 29 ára gamall miðjumaður og kom fyrst hingað til lands á síðasta ári.
Hann samdi þá við Reyni Sandgerði og spilaði tíu leiki með liðinu í 2. deildinni.
Kamara mun halda áfram að spila á Íslandi en hann hefur gert eins árs samning við Dalvík/Reyni.
Reynir Sandgerði féll úr 2. deildinni síðasta sumar á meðan Dalvík/Reynir vann sér sæti upp í deildina með því að hafna í 2. sæti þriðju deildar.