Oliver Stefánsson í Breiðablik (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik tilkynnti rétt í þessu að Oliver Stefánsson væri búinn að skrifa undir samning við félagið. Greint var frá því fyrir viku síðan að Oliver væri á leið í Breiðablik en nú er allt frágengið og búið að gang a frá samningi.
Samningurinn gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Norrköping þar sem hann hefur verið á mála frá því haustið 2018.
Samningurinn gildir út tímabilið 2025. Hann kemur frá Norrköping þar sem hann hefur verið á mála frá því haustið 2018.
Oliver er tvítugur örvfættur miðvörður sem lék á láni hjá ÍA í fyrra. Hann er uppalinn Skagamaður og lék 23 leiki og skoraði eitt mark í Bestu deildinni í fyrra.
Hann er U21 landsliðsmaður, lék sinn fyrsta leik fyrir liðið í nóvember í fyrra. Fyrir átti hann átján leiki að baki fyrir unglingalandsliðin og var fyrirliði 2002 landsliðsins.
„Blikar eru virkilega ánægðir með að hafa tryggt sér þennan öfluga liðstyrk fyrir átökin í Bestu deildinni og Meistaradeildinni," segir í tilkynningu Breiðabliks.
Komnir
Alex Freyr Elísson frá Fram
Arnór Sveinn Aðalsteinsson frá KR
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Horsens (var á láni hjá Val)
Ágúst Orri Þorsteinsson frá Malmö
Eyþór Aron Wöhler frá ÍA
Klæmint Olsen á láni frá NSÍ Runavík
Oliver Stefánsson frá Norrköping (var á láni hjá ÍA)
Patrik Johannesen frá Keflavík
Stefán Ingi Sigurðarson frá HK (var á láni)
Farnir
Dagur Dan Þórhallsson til Orlando
Elfar Freyr Helgason í Val
Ísak Snær Þorvaldsson til Rosenborg
Mikkel Qvist
Sölvi Snær Guðbjargarson í frí
Omar Sowe til Leiknis (var á láni frá NY Red Bulls)
Adam Örn Arnarson í Fram (var á láni hjá Leikni)
Benedikt Warén í Vestra (var á láni hjá ÍA)