Leiknir fær Daníel Finns og Ólaf Flóka á láni (Staðfest)

Daníel Finns er mættur aftur heim

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Finns er mættur aftur heim

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Leiknismenn hafa fengið góða styrkingu fyrir komandi tímabil í Lengjudeildinni en þeir Daníel FInns Matthíasson og Ólafur Flóki Stephensen eru komnir til félagsins á láni út tímabilið.
Daníel Finns þekkir vel til í Breiðholtinu enda uppalinn Leiknismaður en hann fór frá félaginu til Stjörnunnar á síðasta ári.
Hann lék 20 leiki í Bestu deildinni með Stjörnunni síðasta sumar en hann er nú mættur aftur í Leikni á láni út tímabilið.
Ólafur Flóki er fæddur árið 2004 og er á mála hjá Val en hann hefur verið í úrtakshópi hjá U19 ára landsliðinu. Hann lék einn leik með Val í Bestu deildinni á síðasta ári.
Hann spilar stöðu vinstri bakvarðar og kemur á láni frá Val út tímabilið en bróðir hans, Kristófer Konráðsson, var einmitt á láni hjá Leikni á síðasta ári.

Ólafur Flóki (t.h.) er einnig mættur til Leiknis

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð