Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25197 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR13.01.2023, 11:30

Mikael nælir í Unnar Ara og Arek (Staðfest)

KFA hefur fengið öflugan liðsstyrk fyrir komandi átök í 2. deild því Unnar Ari Hansson hefur fengið félagaskipti frá Þrótti Vogum. Þróttarar tilkynntu í lok desember að Unnar Ari væri á förum eftir tvö tímabil hjá félaginu og færi í nýtt starf sem staðsett væri á landsbyggðinni. Unnar er 25 ára miðjumaður.

FRÉTTIR13.01.2023, 11:00

Telmo Castanheira til Malasíu (Staðfest)

Portúgalski miðjumaðurinn Telmo Castanheira er genginn í raðir Sabah í Malasíu. Liðið spilar í malasísku ofurdeildinni sem er efsta deild þar í landi. Hann kom til ÍBV fyrir tímabilið 2019 og lék því alls fjögur tímabil með liðinu. Fyrir það hafði hann spilað allan sinn feril í heimalandinu. Í nóvember var greint frá því að Telmo hefði hafnað samningstilboði félagsins og ætlaði sér að reyna fyrir sér á öðrum vettvangi.

FRÉTTIR13.01.2023, 06:00

Bríet Elvan í Fram (Staðfest)

Fram tilkynnti á miðvikudagskvöld að Bríet Elvan Sæbjörnsdóttir væri gengin í raðir félagsins. Í tilkynningunni kemur fram að Bríet sé ungur og virkilega efnilegur sóknarmaður. Hún er alin upp í Ólafsvík og hefur spilað með Snæfellsnesi í yngri flokkum. <i>&bdquo;Þrátt fyrir að vera aðeins á 17. ári (fædd 2006) hefur hún strax látið til sín taka á æfingum og í æfingaleikjum með Fram,"</I> segir í tilkynningunni.

FRÉTTIR12.01.2023, 21:39

Marciano Aziz í HK (Staðfest)

HK hefur klófest belgíska framherjann Marciano Aziz frá Aftureldingu en hann skrifaði í kvöld undir tveggja ára samning við Kópavogsfélagið.

FRÉTTIR12.01.2023, 16:24

Vinnuhestur frá Leeds mun spila við hlið Guðlaugs (Staðfest)

DC United, lið Guðlaugs Victors Pálssonar, hefur fengið öflugan liðsstyrk frá Leeds á Englandi því Mateusz Klich er genginn í raðir bandariska félagsins. Klich er 32 ára pólskur miðjumaður sem skrifar undir samning út tímabilið 2024 með möguleika á eins árs framlengingu.

FRÉTTIR12.01.2023, 14:01

Juelsgaard frá Val í Fredericia (Staðfest)

Jesper Juelsgaard er búinn að finna sér nýtt félag eftir að samningi hans við Val var rift fyrir áramót. Samkvæmt heimildum <i>bold</I> í Danmörku er varnarmaðurinn að ganga í raðir Fredericia sem spilar í næstefstu deild Danmerkur. <b>Uppfært 14:01:</b> Fredericia hefur kynnt Juelsgaard sem nýjan leikmann félagsins. Samningur hans er til átján mánaða, út tímabilið 2024.

FRÉTTIR11.01.2023, 17:30

Sara Mjöll í HK (Staðfest)

HK hefur fengið markvörðurinn Söru Mjöll Jóhannsdóttur í sínar raðir frá Þór/KA og semur hún til tveggja ára. Sara, sem er uppalin í KA, er fædd árið 1998 og hefur allan sinn meistaraflokksferil leikið með Þór/KA eða venslaliðið félagsins, Hömrunum, fyrir utan veturinn 2017 þegar hún varði mark Tindastóls í Lengjubikarnum.

FRÉTTIR11.01.2023, 16:38

Moreno kominn til Villa (Staðfest)

Aston Villa hefur kynnt Alex Moreno sem nýjan leikmann félagsins en hann kemur frá Real Betis fyrir 13 milljónir punda. Hann varð spænskur bikarmeistari með Betis á síðasta tímabili. Þessi 29 ára gamli Spánverji er fyrsti leikmaðurinn sem Unai Emery kaupir til félagsins. Moreno er vinstri bakvörður sem getur einnig spilað á kantinum. Hann hefur á ferli sínum spilað fyrir Mallorca, Elche og Rayo Vallecano. <i>„Alex er góður leikmaður sem getur hjálpað okkar leikmannahóp. Hann hefur síðustu tímabil verið einn besti vinstri bakvörðurinn í La Liga og við erum hæstánægðir með að fá hann til okkar,"</i> segir Emery. Aston Villa er í ellefta sæti ensku úrvalsdeildarinnar.

FRÉTTIR11.01.2023, 14:18

Samningnum rift í október en verður samt með ÍA í sumar (Staðfest)

Alex Davey hefur samið við ÍA út komandi tímabil. Frá þessu greinir félagið á samfélagsmiðlum sínum í dag. Þetta vekur athygli þar sem ÍA rifti samningi sínum við <a href="https://www.fotbolti.net/news/31-10-2022/ia-riftir-samningum-vid-erlenda-leikmenn-stadfest" target="_blank">Davey í október</a>. Þá var orðið ljóst að liðið yrði í Lengjudeildinni á komandi tímabili og átti leikmaðurinn ár eftir af gildandi samningi.

FRÉTTIR11.01.2023, 12:17

Joao Felix í Chelsea (Staðfest)

Portúgalski landsliðsmaðurinn Joao Felix er mættur til Chelsea á láni frá Atletico Madrid út leiktíðina.

FRÉTTIR11.01.2023, 09:14

Andri Rúnar yfirgefur ÍBV (Staðfest)

ÍBV hefur staðfest að Andri Rúnar Bjarnason hafi yfirgefið félagið en fjölskylda hans er flutt á höfuðborgarsvæðið. Andri er 32 ára sóknarmaður sem skoraði 10 mörk í 25 leikjum fyrir Eyjamenn á síðasta tímabili. <i>„Tímabilið var skemmtilegt. Það var gaman að ná að snúa við blaðinu svona. Það var kannski búið að dæma okkur eftir fyrri hlutann. Það var gaman að sýna seinni hlutann hversu góðir við værum. Persónulega var það erfitt fyrir mig að byrja seint út af meiðslum og ná upp alvöru formi. Ég get verið sáttur við að skila tíu mörkum á þannig tímabili. Heilt yfir var þetta gott sumar þrátt fyrir erfiða byrjun,"</i> sagði Andri í <a href="https://fotbolti.net/news/05-12-2022/andri-runar-a-forum-fra-ibv-fjolskyldan-flutt-a-hofudborgarsvaedid" target="_blank">viðtali við Fótbolta.net</a> fyrir rúmum mánuði. Í því viðtali sagði Andri frá breyttri stöðu fjölskyldu sinnar og að konan sín væri ólétt.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.