Fotbolti.net
11.01.23 - 19:47
Brynjar Ingi Erluson

Tvítugur Argentínumaður til Southampton (Staðfest)

Tvítugur Argentínumaður til Southampton (Staðfest)
Canon

Mynd: Southampton

Southampton gekk í dag frá kaupum á argentínska miðjumanninum Carlos Alcaraz en hann kemur frá Racing Club.
Alvarez er 20 ára gamall og skoraði 9 mörk í 42 leikjum fyrir Racing í argentínsku deildinni á síðasta ári.

Hann er nú mættur í ensku úrvalsdeildina en hann skrifaði undir fjögurra og hálfs árs samning við Southampton í dag.

Kaupverðið er 12 milljónir punda en Racing mun fá 15 prósent af næstu sölu á leikmanninum.

Þetta er annar leikmaðurinn sem Southampton fær í glugganum á eftir króatíska sóknarmanninum Mislav Orsic.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.