Fotbolti.net
12.01.23 - 10:23
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hilmir Rafn til Tromsö á láni (Staðfest)

Hilmir Rafn Mikaelsson.

Hilmir Rafn Mikaelsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Sóknarmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson er genginn til liðs við norska úrvalsdeildarfélagið Tromsö.
Hilmir Rafn, sem er fæddur árið 2004, framlengdi samning sinn við Venezia seint á síðasta ári en hann hefur verið að leika vel fyrir unglingalið félagsins.

Hilmir hefur komið við sögu í einum keppnisleik með meistaraflokki á tímabilinu. Hann kom inn af bekknum í bikarleik gegn Ascoli og skoraði tvennu í 2-3 tapi.

Núna er þessi 18 ára gamli leikmaður mættur til Tromsö þar sem hann mun leika á þessu ári. „Hilmir er ungur og mjög svo spennandi íslenskur sóknarmaður. Við tókum fyrst eftir honum þegar hann spilaði með U19 landsliði Íslands gegn Noregi," segir Lars Petter Kræmer-Andressen, yfirmaður fótboltamála hjá Tromsö.

„Við vitum að það hefur verið mikill áhugi á honum en Venezia hefur ákveðið að halda honum þar sem þeir sjá mikið í hann spunnið. Hann fær góða reynslu á hæsta stigi í Noregi hjá okkur."

Hann staðfestir jafnframt að ef Hilmir mun spila mikið fyrir Tromsö, að þá fái félagið ákveðna prósentu af næstu sölu leikmannsins. Leikmaðurinn mætir til borgarinnar í næstu viku.

Hilmir lék sinn fyrsta leik fyrir U21 landslið Íslands á seinasta ári. Hann lék fyrir Fjölni áður en hann var fenginn til Feneyja.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.