Fotbolti.net
13.01.23 - 06:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Bríet Elvan í Fram (Staðfest)

Bríet Elvan í Fram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fram

Hertz
Fram tilkynnti á miðvikudagskvöld að Bríet Elvan Sæbjörnsdóttir væri gengin í raðir félagsins.

Í tilkynningunni kemur fram að Bríet sé ungur og virkilega efnilegur sóknarmaður. Hún er alin upp í Ólafsvík og hefur spilað með Snæfellsnesi í yngri flokkum.

„Þrátt fyrir að vera aðeins á 17. ári (fædd 2006) hefur hún strax látið til sín taka á æfingum og í æfingaleikjum með Fram," segir í tilkynningunni.
„Við höfum fulla trú á að Bríet muni halda áfram að vaxa og dafna í góðu umhverfi í dal draumanna og verði lykilleikmaður Fram á næstu árum. Við óskum henni innilega til hamingju með sinn fyrsta meistaraflokkssamning og bjóðum hana velkomna í Úlfarsárdalinn. FRAMtíðin er sannarlega björt."

Fram verður í Lengjudeildinni á komandi tímabili eftir að hafa endað í efsta sæti 2. deildar síðasta sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.