Fotbolti.net

Leita

Leita í fréttum

Leitaðu í fyrirsögnum, texta eða eftir höfundi. Fyrsta slice notar staðlaðar fréttafærslur úr typed fixtures og heldur leitinni öruggri án backend-háðra SQL fyrirspurna.

Leitarhamur

Dagsetning

Ef ekkert leitarorð er slegið inn notar síðan dagsetninguna sem einfalt fréttasafnsfilter.

Niðurstöður

Leit að "(Staðfest)" í fyrirsögn og texta skilaði 25202 niðurstöðum.

Leitin er nú fixture-backed og leitar eingöngu í stöðluðum fréttum. Leikir/skýrslur og endanleg backend-samningsleit eru enn ókláruð.

Niðurstöður

FRÉTTIR08.11.2022, 20:44

Björn Daníel og Eggert áfram í FH (Staðfest)

Á stuðningsmannakvöldi FH í Kaplakrika í kvöld verður nýr þjálfari FH liðsins kynntur til leiks. Heimir Guðjónsson er að taka við liðinu fimm árum eftir að ákveðið var að láta hann fara frá félaginu. Þá hafði Heimir verið í FH í eftir sautján ár, fyrst sem leikmaður, svo aðstoðarþjálfari og svo þjálfari. Við sama tilefni var tilkynnt að búið væri að framlengja við tvo leikmenn félagsins sem urðu samningslausir undir lok tímabils. Það eru þeir Björn Daníel Sverrisson og Eggert Gunnþór Jónsson, þeirra samningar voru framlengdir um eitt ár.

FRÉTTIR07.11.2022, 22:30

Marseille kaupir Amine Harit (Staðfest)

<p>Miðjumaðurinn sóknarsinnaði Amine Harit var í byrjunarliði Marseille sem lagði Lyon að velli í stórleik í frönsku deildinni í gær.</p>

FRÉTTIR07.11.2022, 10:08

Hasenhuttl rekinn frá Southampton (Staðfest)

Southampton hefur staðfest að félagið hefur látið Ralph Hasenhuttl, stjóra liðsins, fara. Þá hefur Richard Kitzbichler, aðstoðarþjálfari Hasenhuttl, einnig yfirgefið félagið. Ákvörðunin var tekin eftir tap liðsins gegn Newcastle í gær. Sögur voru farnar að heyrast af því að það ætti að reka Hasenhuttl í HM hléinu en félagið ætlar ekki að bíða svo lengi og hefur þegar sagt skilið við stjórann.

FRÉTTIR06.11.2022, 21:00

Ásgeir Marinó og Elvar Baldvins farnir frá Þór (Staðfest)

Þór kvaddi í dag þrjá leikmenn félagsins sem léku með liðinu á liðnu tímabili, og þakkaði þeim fyrir tíma sinn hjá félaginu. Í síðasta mánuði var sagt frá því að <a href="https://www.fotbolti.net/news/16-10-2022/harley-willard-riftir-samningi-sinum-vid-thor" target="_blank">Harley Willard hefði nýtt sér uppsagnarákvæði</a> í samningi sínum við félagið og þá er ljóst að þeir Ásgeir Marinó Baldvinsson og Elvar Baldvinsson verða ekki áfram hjá félaginu.

FRÉTTIR05.11.2022, 09:31

Lopetegui ráðinn stjóri Úlfanna (Staðfest)

Julen Lopetegui hefur skrifað undir samning við Wolves og tekur við sem stjóri félagsins þann 14. nóvember, þegar HM hléið hefst. Félagið tilkynnti þetta núna í morgunsárið. Spánverjinn var fyrsti kostur Úlfanna eftir að Bruno Lage var rekinn þann 2. október en hann hafnaði því í fyrstu að taka við liðinu. Hann vildi vera á Spáni til að hugsa um aldraðan föður sinn. En honum hefur nú snúist hugur og tekur við liðinu seinna í þessum mánuði.

FRÉTTIR04.11.2022, 17:09

Todor Hristov tekur við kvennaliði ÍBV (Staðfest)

ÍBV tilkynnti í dag að Todor Hristov væri tekinn við kvennaliði félagsins. Todor skrifar undir þriggja ára samning við ÍBV en hann hefur síðustu tvö ár þjálfað yngri flokka félagsins. Jonathan Glenn, sem þjálfaði kvennaliðið í sumar, var sagt upp hjá ÍBV í síðasta mánuði og er hægt að lesa meira <a href="https://fotbolti.net/news/17-10-2022/yfirlysing-fra-ibv-undir-thvi-aetlum-vid-ekki-ad-sitja" target="_blank">um það mál hér.</a>

FRÉTTIR04.11.2022, 10:57

Alex Bergmann í Njarðvík (Staðfest)

Njarðvík tilkynnti í dag að Alex Bergmann Arnarsson hefði skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Alex kemur til Njarðvíkur frá Víkingi þar sem hann hefur verið samningsbundinn undanfarið eitt og hálft ár. Alex hefur þó ekki spilað með Víkingi heldur verið lánaður til bæði Ólafsvíkur Víkinga og ÍR. Þetta er í annað sinn sem Alex spilar með Njarðvík á sínum ferli því hann var þar á láni frá Fram fyrri hluta tímabilsins 2020. Þá lék hann sjö leiki með liðinu í 2. deild.

FRÉTTIR04.11.2022, 06:00

Halldór Ingvar tekur við KF (Staðfest)

<p>Halldór Ingvar Guðmundsson hefur verið ráðinn þjálfari KF en hann tekur við af Slobodan Milisic en KF ákvað að framlengja ekki samninginn hans.</p>

FRÉTTIR03.11.2022, 17:30

Rosenior nýr stjóri Hull (Staðfest)

Stjóraleit Hull City er loksins lokið en Liam Rosenior hefur verið ráðinn í stað Shota Arveladze sem var rekinn í lok september. Hull er í 21. sæti Championship-deildarinnar, einu stigi fyrir ofan fallsæti.

FRÉTTIR03.11.2022, 11:04

Anna Rakel áfram í Val (Staðfest)

Anna Rakel Pétursdóttir hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Val. Hún er nú samningsbundin út tímabilið 2024. Fyrri samningur rann út eftir nýliðið tímabil. Rakel, eins og hún er oftast kölluð, er fædd árið 1998 og hefur síðastliðin tvö sumur leikið fyrri Val. Hún missti af nær öllu tímabilinu 2021 vegna meiðsla en var í lykilhlutverki í ár þegar Valur varð tvöfaldur meistari.

FRÉTTIR03.11.2022, 06:00

Tomasz Luba áfram með Árborg (Staðfest)

Tomasz Luba, þjálfari Árborgar, mun þjálfa liðið áfram í nýrri 4. deild á næsta ári en hann framlengdi samning sinn við félagið í gær.

FRÉTTIR02.11.2022, 12:19

Rasmus og Lasse verða ekki áfram hjá Val (Staðfest)

Rasmus Christiansen og Lasse Petry verða ekki áfram hjá Val. Þetta staðfesti Sigurður Kristinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vals, við Fótbolta.net. Diddi, eins og Sigurður er yfirleitt kallaður, staðfesti þá að Andri Adolphsson væri með samningstilboð á borðinu frá Val.

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.